Hugbrot.is

Fáðu ókeypis bók eða disk

lesa meira...



Heim arrow CD diskar arrow Umsagnir
Umsagnir
Núna sefur hún eins engill

"Ég er búinn að kaupa nokkra diska hjá ykkur og líkar stórvel. Konan vinnur eingöngu næturvaktir þar, sem hún vinnur og hefur átt erfitt með svefn á næturnar eftir vaktir. Eftir að hún fékk diskinn "Betri svefn" gjörbreyttist svefninn hjá henni. Núna sefur hún eins engill. "
Kærar þakkir,
-- Pétur
 

 
Geisladiskarnir virka!

"Ég segi enn og aftur þetta var og er ótrúlegt, hlusta bara á diskinn og er í fínu formi. Mæli eindregið með þessum diskum er ekki í vafa að þeir virka!"
--Unnur

 
 
Virkar ótrúlega vel hvort sem er til að halda jafnaðargeði, vinna á kvíða eða depurð

Fyrir nokkuð mörgum árum rakst ég diskana frá Hugbrot og hef notað sex þeirra með góðum árangri. Diskurinn "Aukin ánægja" er þeirra magnaðastur. Hann virkar ótrúlega vel hvort sem er til að halda jafnaðargeði, vinna á kvíða eða depurð. Þessi diskur hefur fylgt mér hvert sem ég ferðast enda orðinn hluti af tilverunni. Þó að ég sé hrifnastur af þessum disk eru hinir ekki síðri og skila allir árangi sem ég þekki af eigin raun því ég hef notið góðs af þeim hátt í áratug.

--Sveinn Ragnarsson, Tæknifræðingur


 
Upp úr hugarfari...

Úrdráttur úr grein í Mbl. 31 maí 2005

Nýlega prófaði ég svonefnda "sjálfsdáleiðslu" til að ná mér út úr leiðinda ávana sem ég hef tamið mér og mig langaði til að losna við. Sjálfsdáleiðslan fólst í því að hlusta á geisladisk sem hefst á rólegri tónlist og slökun, sem síðan er fylgt eftir með jákvæðum og uppbyggilegum skilaboðum sem ætlað er að hjálpa manni að breyta um hugarfar.

Það er mér mikil ánægja að segja frá því að þessi aðferð virðist ætla að bera árangur. A.m.k. hefur hugarfar mitt breyst gríðarlega við aðeins nokkrar hlustanir. 
--Svavar Knútur Kristinsson, blaðamaður Mbl.

 
SÚPER árangur...

Halló. Eg hef reynt megrunarpakkan með SÚPER árangri og kann ég ykkur þakkir fyrir það.   --Sigurður R. Þórarinsson

 
Þetta var hreint ótrúlegt...

Haustið 2004 keypti ég diskinn "Losnað við kílóin" í versluninni Betra Líf. Hafðir eyndar ekki mikla trú á þessari meðferð en þar sem ég er afar nýjungagjörn þá varð ég að prófa enda allt of feit. Hlustaði samviskusamlega í 30 daga, öll hreyfing jókst verulega, nokkur kíló fóru (hafa ekki komið aftur) OG árskortiðvar notað að meðaltali 2-3 í viku allt árið 2005 sem mér þykir AFREK!!!

Það var svo um miðjan nóvember 2005 að ég var stödd í Maður Lifandi, að kaupa mér einhver vítamín til að byggja mig upp fyrir desember, að diskurinn "Sofðu betur" hreinlega datt úr hillunni í hendurnar á mér eins og einhver hafi verið að leiðbeina mér.  Ég er í verslunarrekstri og kvíði alltaf fyrir löngum vinnutíma í desember og andvökunóttum þegar ég er undir álagi. Ég byrjaði strax að hlusta og viti menn þetta var hreint ótrúlegt svaf eins og steinn allar nætur í des. hef reyndar ekki enn náð að hlusta diskinn á enda, er alltaf sofnuð löngu áður en hann klárast.  Ég segi enn og aftur þetta var og er ótrúlegt, ég hef stundum þurft að leita til læknis eftir svefntöflum en nú þarf ég þess ekki lengur, hlusta bara á diskinn og er í fínu formi.

Mæli eindregið með þessum diskum er ekki í vafa að þeir virka. Næst ætla ég a taka fyrir betri einbeitingu, þá næ ég kannski að klára uppsöfnuð verkefni, svo eru þetta bara svo slakandi diskar.

Takk kærlega fyrir mig
Unnur Ósk Kristjónsdóttir

 
Sef eins og steinn...

Það var mikið álag í vinnunni og ég var farinn að sofa illa á næturnar þegar konan mín keypti handa mér diskinn Betri svefn. Ég hafði enga trú á þessu en við hlustuðum samt á diskinn á kvöldinn og það liðu ekki margir dagar þar til ég var farinn að sofa betur. Nú sef ég eins og steinn á hverri nóttu.
--Guðleifur Svanbergsson, iðnaðarmaður

 
Einhver besta fjárfesting sem ég hef lagt í...

Ég keypti grenningarpakkann fyrir nokkrum mánuðum síðan og það er einhver besta fjárfesting sem ég hef lagt í í langan tíma. Þessar aðferðir sem notaðar eru á diskunum frá Hugbrot eru ekki ein ,,töfralausnin" enn - þær virka. Eftir að hafa hlustað á sjálfsstyrkingardiskinn í mánuð finn ég að sjálfstraust mitt hefur aukist til muna. Ég er ekki lengur í vafa um hæfni mína og getu og sjálfsmynd mín hefur tekið miklum stakkaskiptum. Ég bæði þori og get. Diskurinn ,,Losnað við kílóin" hefur gert kraftaverk á mér og minni áður öfgakenndu matarlyst. Einnig hefur sá diskur haft byltingarkennd áhrif á viðhorf mitt gagnvart líkama mínum. Það hvernig undirmeðvitundin er prógrammeruð er greinilega lykill að lausn margra vandamála og merkilegt hvernig hægt er að breyta hugsunarhætti og henda út gömlum vanadraugum á jafn skömmum tíma með svona góðum árangri.

Sem kennari hef ég alvarlega íhugað að nota þessar ofurnámsaðferðir í kennslu. Hér er um viðurkenndar aðferðir að ræða sem byggðar eru á viðurkenndum, vísindalegum rannsóknum. Ég hef keypt mér fleiri diska hjá Hugbrot og hlakka til að sjá árangurinn.

--Sigrún Lilja Einarsdóttir
Framhaldsskólakennari

 
Hann er meiriháttar...

Ég keypti mér Megrunardiskinn og hann er meiriháttar, í fyrsta skipti í mörg ár er eitthvað að ganga hjá mér, og ég sef eins og engill!
--Íris Arthúrsdóttir 

 
Ótrúlegt hvað svefninn hefur breyst...

Ég hef verið að hlusta á diskinn "Betri svefn" núna undanfarið og það er alveg ótrúlegt hvað svefninn hefur breyst. Ég hef lengi átt mjög erfitt með svefn en ég finn mikinn mun eftir að hafa hlustað á diskinn.
--Birna Rebekka Björnsdóttir, nemi 

 


Pantanir og vöruskil   |   Notkunarskilmálar   |   Trúnaðarupplýsingar